Jahérna, árið byrjar vel!
Ég og Hannes ákváðum að stofna þessa svakalegu bloggsíðu, ekki veit
ég alveg til hvers, en okkur langar bara svo að vera nettir með
blogsíðu eins og allir hinir töffaranir skiljiði..þið vitið hver
þið eruð!
En við ætlum að reyna að vera duglegir að uppfæra þessa síðu, er
kannski ekkert mikið á henni núna, en ég skal lofa ykkur að hún
verður stútfull innann fárra vikna af myndum og fleira skemmtulegu.
Þessi dagur er búinn að vera frekar rólegur, vaknaði kl
11...vaknaði svo aftur kl 17 og þá var bara setið fyrir framan
tölvuna

og horft á eitthvað áhugavert ( Little Britain!!

) og
síðan hringdi heimski Hannes í mig og við fórum á KFC/Taco Bell og
vill ég hér með vara fólk við að fara þangað, skelfileg þjónusta að
mínu mati og asnalegasta fyrirkomulag sem fyrir finnst....nú er
ekki lengur miðakerfi...neinei..núna stendurðu bara í röð þangað
til það er kallað næsti og þú ert nógu frekur að fara á
kassann..amk fórum áðan.. og biðum eftir Tower Zinger tilboði í
40mín, meina okei var alveg mikið að gera en comeon, afgreiðslan
gekk hægar en ég veit ekki hvað og var fólkið þarna orðið vel
pirrað eins og ég...!!!
Fórum síðan bara heim til mín þar sem við horfðum á Arsenal rústa
Charlton 4-0

og síðan fórum við í Pool í Lágmúlanum..reyndar 2
stelpur sem beiluðu á okkur, nefni engin nöfn en þær þorðu
ekki..þær vildu frekar keilu...vinn þær hvorter hvar sem er!
En endilega commentið og skrifið í gestabókina ómægod, þetta verður
suddaleg síða..Siggi Lár kóngurinn hvað??
Kv, Pétur....
Hverjir eru Piltarnir ?
Hannes Ragnarsson og Pétur Gíslason (nánar í profiles on the
side)
Þá er þessu fyrsta bloggi lokið..
Later..